Register  |  Login
 Um Myndagaman
Um Myndagaman Minimize
 

Hugmyndin varð til í sept. 2003. Í byrjun var ætlunin einungis sú að búa til skemmtilega jólagjöf handa ættingjum en góðar viðtökur og hvatning fjölskyldunnar leiddu það að verkum að við ákváðum að leyfa fleirum að njóta. Í framhaldi af því höfum við verið að sýna frumgerð af dagatalinu þar á meðal aðilum hjá Flugmálafélagi Íslands. Þeim leist það vel á útfærsluna að ákveðið var að setja í prentun 800 eintök þar sem Myndagaman sá um hugbúnaðinn sem bjó til dagatalið. Hann skilaði af sér skjali sem var tilbúið til prentunar í prentsmiðju. Því næst hófumst við handa við að sækja um lén og útfæra vef þar sem notendur geta búið til sín eigin dagatöl. Vefurinn var opnaður í sept. 2005.

 

Við sem að þessu stöndum erum Viðar Þórðarson og Vala Jóna Garðarsdóttir.

 

Hægt er að ná í okkur í myndagaman@myndagaman.is eða í síma 895 1472

 

Heimilisfangið er

Myndagaman

bt. Viðar Þórðarson

 

Fensalir 12

 

201 Kópavogur